Til sidst – opgaver
Þegar þú hefur kynnt þér vel efni kaflans, Norden, er gott að spreyta sig á þessum verkefnum:
Jeopardy er spurningaleikur sem kennari stjórnar í gegnum tölvu og skjávarpa. Hann ákveður hversu mörg lið etja kappi og raðar nemendum í lið. Hægt er að velja allt að 16 lið.
Í þessu verkefni eru fimm efnisflokkar – design, popmusik, seværdigheder, ordforråd, ordforråd/verber – og í hverjum flokki er hægt að velja fimm spurningar. Spurningar eru misþungar, þær léttustu gefa 100 stig og svo koll af kolli upp í 500 stig fyrir erfiðustu spurningarnar. Kennari sér um að gefa stig og getur gefið mínusstig ef þurfa þykir. Ekki er þó mælt með því. Neðst á skjánum birtast liðsnúmerið og þar undir eru plús og mínus hnappar.
Með því að smella á krækjuna hér að neðan opnast spurningakeppni í Kahoot. Kennari varpar henni upp af skjávarpa. Á skjánum birtist númer, svokallað game pin. Nemendur/hópar slá það inn í snjalltækin og þá eru þeir orðnir þátttakendur í leiknum. Þegar allir hafa skráð sig inn með nafni setur kennari keppnina í gang. Spurningarnar birtast á skjánum og nemendur svara með snjalltækjunum. Hver spurning varir í 30 sekúndur eða þar til allir hafa svarað. Að leik loknum getur kennari vistað niðurstöðurnar í excel skjali.
Vinnið saman tvö og tvö. Tengið saman 4 orð sem passa saman og finnið út hvaða tengingu þau hafa. Þið fáið 1 aukastig ef þið getið upp á hvaða flokki orðin tilheyra. Dæmi: populær, sjov, interesseret og smuk – tilheyrir flokknum adjektiver (lýsingarorð). Mest er hægt að fá 8 stig.
Smelltu á krækjuna og síðan á Start Game!