Til sidst – opgaver
Þegar þú hefur kynnt þér vel efni kaflans, Hverdagen, er um að gera að reyna við þessi verkefni:
Jumble er möguleiki í Kahoot þar sem nemendur raða fjórum atriðum saman, t.d. í stærðarröð, aldursröð eða einhverri fyrir fram gefinni röð. Verkefnið hentar fyrir einstaklinga eða hópa. Til að leysa þetta verkefni þarf að hafa áskrift (pro feature).
Um er að ræða 11 þrautir er tengjast efni kaflans um Hverdagen: en krop, tøj og tilbehør, tid og aktiviteter. Liðin hafa 60 sekúndur til að leysa hverja og eina þeirra.
Með því að smella á hlekkinn hér að neðan opnast þrautin í Jumble Kahoot. Varpið henni upp af skjávarpa. Á skjánum birtist númer (game pin). Nemendur/hópar slá það inn í snjalltækin og þá eru þeir orðnir þátttakendur í leiknum. Þegar allir hafa skráð sig inn með nafni setur kennari keppnina í gang. Spurningarnar birtast á skjánum og nemendur svara með snjalltækjunum. Hver spurning varir í 30 sekúndur eða þar til allir hafa svarað. Að leik loknum getur kennari vistað niðurstöðurnar í Excel skjali og farið yfir þær með nemendum.
Verkefnið skiptist í tvennt.
- Skrifið stutta lýsingu á ykkur sjálfum. Notið orðaforðann úr kaflanum. Hvað ertu gamall/gömul, hvað finnst þér skemmtilegast að gera, hver er besti maturinn þinn en uppáhaldsliturinn? …
- Vinnið saman tvö og tvö. Ræðið saman á dönsku um það sem þið skrifuðuð niður í lið 1.
Jeopardy er spurningaleikur sem kennari stjórnar í gegnum tölvu og skjávarpa. Hann ákveður hversu mörg lið etja kappi og raðar nemendum í lið. Hægt er að velja allt að 16 lið.
Í þessu verkefni eru fimm efnisflokkar – krop, tøj og tilbehør, tid, klokken, aktiviteter – og í hverjum flokki er hægt að velja fimm spurningar. Spurningar eru misþungar, þær léttustu gefa 100 stig og svo koll af kolli upp í 500 stig fyrir erfiðustu spurningarnar. Kennari sér um að gefa stig. Hægt er að gefa mínusstig en ekki er þó mælt með því. Neðst á skjánum birtast liðsnúmerið og þar undir eru plús og mínus hnappar.